15.3.2010 | 15:01
Kosturinn við það að vera einhleyp kona
- Ræður fjarstýringunni
- Sjálfstæðið og frelsið
- Þarft ekki að pirra þig á því ef kallinn setur eitthvað vitlaust í þvottarvélina
- Getur haft sjónvarpið stillt á annað en fótbolta.
- Sjálfsfróun án samviskubits
- Einveran
- Skotin
- Að vita að maður er ekki að þrífa upp skítinn eftir aðra en sjálfa sig
- Frelsið
- Gert það sem ég vil
- Eldað þegar ég vil
- Drukkið þegar ég vil
- Gera alltaf það sem MIG langar að gera!
- Enginn sem segir að það sé hallærislegt að horfa á sápuóperur
- Engir notaðir eyrnapinnar við vaskinn
- Baðherbergismottan ekki rennandiblaut eftir eina sturtu
- Þarft ekki að hlusta á hversu kúl nýi Star Wars tölvuleikurinn er
- Engin vonbrigði þegar þú hefur vonast eftir að makinn aðstoði á heimilinu en hann gerir það svo ekki
- Engin sem heldur vöku fyrir þér með hrotum
- Engin hætta á því að karlinn verði afhuga bara vegna þess að þú gleymir nokkrar vikur í röð að kaupa rakvélarblöð og ert því orðin eins og Frumskógur
- Engin sem birtist óvænt heim með vinnufélaga í mat þegar þú ert MJÖG léttklædd, búin að gleyma að elda, með maska í andilti og raksápu á öðrum stöðum
- Góð tilfinning að vita að ég geti allt ein
- Þú hefur rúmið þitt, koddann þinn og sængina þína út af fyrir þig
Þú þarft ekki að þola prumpulykt, svitalykt og skítalykt annarra - Það er aldrei pissað á setuna eða út fyrir klósettið. Setan er alltaf eins og þú vilt hafa hana.
- Þú gengur frá hlutunum þar sem þú vilt hafa þá og þarft ekki að hafa fyrir því að leita að þeim.
- Þú getur gert það sem þér dettur í hug á sömu stundu og þér dettur það í hug.
- Þú horfir á þá sjónvarpsstöð sem þú vilt þegar þú vilt.
- Þú þarft ekki að bíða eftir að röðin komi að þér á baðherberginu á morgnana.
- Þú þarft heldur ekki að bíða eftir að geta lesið Moggann ef makinn hefur náði í hann á undan þér.
- Þú þarft ekki að taka tillit til annarra.
- Þú átt ekki erfiða tengdaforeldra.
Tekið af ER.is
Myndband dagsins og hún minnir mig svolítið á mig:
Ég elska Mad TV!!
Hreyfing dagsins:
Á að fara í dag en slasaði mig á djamminu á föstudaginn...he he:-S
Var á árshátíð og skemmti mér svona glimmrandi vel, held ég, undir lokin...ha ha ha
Fer á morgun í staðinn.
Segir ekki þessi mynd allt sem segja þarf um föstudaginn
Speki dagsins:
Dæmdu aldrei náungann fyrr en þú hefur staðið í sporum hans
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.3.2010 | 13:01
Stundum er hægt að gera sjálfan sig.....
listrænan með tækninni
Myndband dagsins:
Dýri er dásamlegur og takið eftir svipbrigðunum
Hreyfing dagsins:
Fór í gær og hljóp og fer í dag og hleyp. Finn smá fyrir álagsmeiðslum á hnjám en that´s worth it.
Er ekki nógu slök á hlaupabrettinu enn en vá hvað ég er farin að finna mikin mun bara eftir mánuð!
Síðan verður ekki hreyfing alla helgina nema kannski á morgun þegar ég ætla að mála bæinn rauðan
Speki dagsins:
Segðu ekki allt sem þú veist, trúðu ekki öllu sem þú heyrir, og gerðu ekki allt sem þig langar til.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.3.2010 | 21:22
Sítrónur
Eitt af mínum uppáhalds gjöfum jarðar eru Sítrónur.
Þær eru fallegar á litinn, bragðgóðar, ríkar af c-vítamíni, ilma vel og gleðja augað.
Mér finnst gott að fá mér te á kvöldin en nenni þá ekki alltaf að kreista sítrónu út í teið þannig að ég bý til sítrónumauk og set alls konar í það eftir skapi og árstíðum.
Ég ætla pósta eitt af mínu mörgum maukum (eins og mér er sagt, ég er alltaf að kukla með gjafir jarðar)
Þetta er mjög einfalt og þarf lítinn undirbúning.
Þetta er sítrónu og engifermauk og er ekki soðið!! Nota ca. 6 sítrónur á móti einum meðalstórum Engifer.
Finna Sítrónur sem eru vel þroskaðar því þær eru sætari en þessar sem eru yngri, þær eru súrari.
Síðan er gott að skera endana af og það ljótasta af hýðinu og skera hýðið alveg af engifernum. Það er mjög gott að hafa hlýðið með af sítrónunni. Muna bara að þvo hana vel.
Þetta er skorið í bita og reynt að hreinsa helstu steina úr. Þessu skellt í matvinnsluvél og látið maukast mjög vel. Ef maukið er of þykkt, bætir maður smá vatni.
Þegar þetta er tilbúið, setur maður þetta beint á krukkur og geymir í kæli. Hef ekki prófað að frysta þetta en eflaust má það líka.
Ef maður setur meðalstóran Engifer verður þessi blanda skemmtilega súr-sterk því Engiferinn rífur í.
Síðan er þessu bara skellt með teskeið ofan í teið ásamt smá hunangi ef einhver vill með. Þetta verður svona skemmtilega chunky og sest á botninn og er samt rosalega gott að borða þegar teið er búið.
Einnig finnst mér mjög gott að fá mér bara eina matskeið af þessu á morgnana, beint úr krukkunni!!!
C-vítamín og svo á Engiferinn að vera allra meina bót!
Svo er þetta líka skemmtilega öðruvísi gjöf
Myndband dagsins:
þetta er svona "happy" myndband.......sem minnir mig á það að ég er að fara að leika Pál Óskar á árshátíð á föstudaginn og þennan yndisfagra dans......MUHAHA!!!
alla þessa fegurð nærri mér
Ég tók því sem gefnu
en staldraði aðeins við
Ég er á réttum tíma á réttum stað
Hverjum get ég þakkað fyrir það ?
Ég opnaði augun
og hjartað
Fann á ný betra líf
af því ég fór loks að trúa því
að það væri eitthvað annað
eitthvað meir og miklu stærra
Hreyfing dagsins:
Telst mikil ganga í vinnunni með?
Fer á morgun og á fimmtudaginn því ég ætla að vera skökk og rokka feitt á föstudaginn og sækja félaga minn sem ætlar að vera partnerinn minn á árshátíðinni út á flugvöll.....wooohoooo!!!

Speki dagsins:
Allt sem er gult, gult finnst mér vera fallegt, fyrir vin minn litla kínverjan!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.3.2010 | 01:38
Spurning að segja aldrei....
eða hvað?
Hreyfing dagsins:
Búin að bæta mig í hraða og úthaldi....glöð með það
Speki dagisins:
Eftir fréttir helgarinnar á ég eiginlega ekki til speki en án gríns að þá er til grúbba á FB sem heitir helvítis karlmenn og já, ætla bara að halda mig við hana.
Hvað er að gerast með fólk í dag á vefnum? Er single lið að flippa? Eða fólk eftir langan skilnað að flippa?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2010 | 14:18
Lífshamingja II
Mér finnst oft gott að lesa svona lífsreglur til þess að minna mig á ákveðna hluti í lífinu, sérstaklega þegar maður stendur frammi fyrir breytingum og annað.
Vekur mann oft til umhugsunar! Við lifum í þjóðfélagi hraða og streitu og höfum oft lítinn tíma til að hugsa og staldra við. Hér koma nokkur góð ráð til að laga til í sálinni og láta sér líða betur.
1. Hægðu á. Gerðu stöðugt hvað þú getur til að hægja á hugsunum þínum og hreyfa þig hægt og rólega. Samtímis er skynsamlegt að gera minni kröfur til sín. Fækkaðu verkum þínum og láttu sum hafa forgang. Taktu þér nokkur stutt hvíldarhlé allan daginn. Gefðu þér tíma til að stunda tómstundir sem þér finnst gaman að og hafa góð áhrif á þig; það þarf ekki að vera flóknara en svo en að fara í göngutúr eða baka köku.
2. Vertu ákveðin/n. Horfstu í augu við vandamál þín og vittu til, þau minnka og hverfa jafnvel. Þú þarft viljastyrk til að framkvæma þetta og vera ákveðin/n. Viljasterkt og ákveðið fólk fer ekki í launkofa með hvað það hugsar og hvaða tilfinningar það ber í brjósti. Það getur sagt ,,nei”. Um leið og það lætur í ljós þarfir sínar og vandamál horfist það í augu við átök, á ákveðinn og kurteislegan hátt. Það virðir rétt annarra og gerir kröfur til að sinn réttur sé líka virtur. Það bjargar sér sjálft fremur en að ætlast til að annað fólk lesi hugsanir þess. Þú getur æft viljastyrk eins og aðra hæfni. Ef þér finnst þig skorta viljastyrk gætir þú reynt að fá utanaðkomandi hjálp til að þjálfa hann upp.
3. Fyrirgefðu sjálfum þér og öðrum. Fyrirgefningin er ein mikilvægasta dyggð mannsins. Það er nauðsynlegt að vera ekki stöðugt að erfa allt mögulegt við annað fólk. Ef þú kannt ekki að fyrirgefa bitnar það aðeins á þér. Oftast hefur sá sem ,,braut af sér” ekki hugmynd um það og enn síður að þú þjáist vegna gjörða hans. Hann hugsar ekki um atvikið en heldur áfram að njóta lífsins meðan þú íþyngir sjálfum þér með erfiðum tilfinningum. Það er tilgangslaust að vera sífellt að áfellast aðra. Hitt er þó kannski enn verra og erfiðara að kunna ekki að fyrirgefa sjálfum sér. Í þessu sambandi er hægt að benda á að ef þú hefur ekki fyrirgefið þér eitthvað sem henti í fotíðinni og ert sífellt að velta þér upp úr því hefurðu þegar tekið út svo mikla þjáningu að það er orðið meira en nóg refsing fyrir mistök þín. Hvaða ástæða er þá til að lengja kvölina? Það bætir allra síst ástandið.
Þú átt valið. Að hlekkja þig við mistök fortíðarinnar eða takast á við líf þitt.
4. Lifðu í núinu. Fjöldi fólks frestar hamingjunni. Það puðar og puðar og lifir skítalífi í þeirri von að þegar einhverju marki sé náð og þetta eða þetta gerist verði það hamingjusamt. En hvað um daginn í dag, núið? Við vitum aldrei hvað við fáum langan tíma í þessu lífi. Hví þá að lifa eins og við séum á einhverri leikæfingu í stað þess að njóta sjálfs leiksins, hvers augnabliks lífsins? Líttu á hvern dag sem heilt líf í sjálfu sér. Lifnaðu við að morgni og kveddu síðan að kvöldi. Það sem er þarna á milli á að skipuleggja sem afmarkaða heild og lifa eftir því. Núið er allt sem þú átt. Fortíðin er liðin og framtíðin ókomin. Hvað sem þú ert að fást við ættirðu alltaf að reyna að njóta út í æsar hvers augnabliks.
5. Skipt um félagsskap. Við erum öll undir áhrifum fólksins í kringum okkur, sem við umgöngumst daglega. Vinátta við jákvætt fólk getur kennt okkur að vera jákvæð. Maður getur smitast af vináttu við neikvætt fólk og orðið neikvæður. Gerðu þér grein fyrir hvað þú vilt fá út úr lífinu og veldu þér síðan vini í samræmi við það. Kæruleysi varðandi þetta getur verið dýrt spaug.
6. Hláturinn lengir lífið. Fólk hefur jafnvel sigrast á sjúkdómum með því aðallega að hlæja. Það er enginn vafi að hlátur hjálpar þér að losna við neikvæðar tilfinningar. Lærðu að horfast með kímni í augu við vandamálin. Slíkt getur auðgað líf þitt. Horfðu á gamanmyndir, og lestu fyndnar bækur. Hafðu augu og eyru opin fyrir öllu því skemmtilega í kringum þig. Snúðu þér af fullri alvöru að gamanseminni.
7. Gættu að mataræðinu. Borðaðu nærringarríkan mat, sambland af ferskum ávöxtum, grænmeti, hnetum, kolvetni, fiski og fuglakjöti. Slíkt mataræði í hófi styrkir líkamann gegn álagi. Matur sem inniheldur C-vítamín, E-vítamín, magnesíum, kalí, kalk, zink, og fosfór er talinn koma að bestum notum við streitu. Grös eins og maðjurt, hjartafró, lárviðarlauf og kirsuber eru talin hafa róandi áhrif. Það er gagnlegt að gera sér grein fyrir hvort og hvernig mataræðið hefur áhrif á skap þitt. Reyndu að taka eftir því hvernig mismunandi fæða getur haft áhrif á líðan þína. Ekki breyta skyndilega um mataræði heldur þreifaðu þig áfram og skiptu smámsaman út þeim mat sem þér líður ekki vel af.
8. Þjálfaðu líkama þinn mátulega. Þú losar um spennu með því að stunda líkamsrækt af einhverju tagi. Þegar þú gerir æfingar losna út í blóðrásina endorfín ,,sæluefnin” sem eru hin eðlilegu vellíðunarhormón líkamans og skýra vellíðunartilfinningu sem fólk finnur eftir leikfimi. Farðu hægt af stað og ráðfærðu þig við fagfólk til að ná sem bestum árangri.
9. Farðu í nudd. Með nuddi má slaka á spenntum vövðum, draga úr verkjum og sársauka og bæta blóðrásina. Láttu við og við eftir þér að fara í nudd hjá fagmanni ef þú hefur efni á því. Þess á milli gæti maki eða vinur lagt þér lið og lært að nudda þig á réttan hátt.
10. Hugaðu að líkamsstellingu og svip. Líkamstelling og svipur fólks geta haft bein áhrif á líðan þess og skap. Réttu úr baki og vertu upplitsdjarfur og brostu við lífinu.
Heimildir: Elaine Sheehan: Kvíði, fælni og hræðsluköst. Sjálfshjálp og leiðbeiningar fyrir fjölskyldu.
Birt með góðfúslegu leyfi Uppeldis.
Myndband dagsins:
Aftur Chris Cornell en svo er hann líka frábær textasmiður og mér finnst einstaklega gaman að rýna í ljóð og texta:
Before you landed, I had a will but didn´t know what it could do
You were abandoned, and still you´re handing out what you don´t wanna lose
You make me drop things, like all the plans I had for a life without you
Someone to die for
someone to fall into when the world goes dark
Someone to die for
someone to tear a hole in this endless night
Someone like you
I´m drunk when sober, the room is spinning - you are what I hold onto
You´re taking over, I find that giving in is the best I can do
Someone to die for
someone to fall into when the world goes dark
Someone to die for
someone to tear a hole in this endless night
Someone like you
Someone to die for
Someone to die for
Someone to die
Someone, someone, someone
Someone to die for
someone to fall into when the world goes dark
Someone to die for
someone to tear a hole in this endless night
Someone, someone like you
Hreyfing dagsins:
Hlaup - er farin að kalla mig Forrest Gump en er samt ekki nærri því eins dugleg og hann og á langt í land.....
Speki dagsins:
Verður maður ekki að hafa einhvern someone to die for?
Góða helgi og takk fyrir innlitið þið sem kíktuð
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.3.2010 | 18:57
Lífshamingja
Til umhugsunar
Hin 90 ára gamla Regina Brett frá Ohio skrifaði þessi 45 atriði um það sem lífið hafði kennt henni:1. Lífið er ekki sanngjarnt, en það er samt ljúft.
2. Þegar þú ert í vafa, taktu þá bara lítið skref.
3. Lífið er of stutt til að eyða tíma í að hata einhvern.
4. Vinnan þín mun ekki sjá um þig þegar þú verður veik. Vinir þínir og fjölskylda munu gera það. Vertu því í góðu sambandi við þau.
5. Greiddu kreditkortareikninginn í hverjum mánuði.
6. Þú þarft ekki að vinna öll deilumál, samþykktu að vera ósammála.
7. Gráttu með einhverjum. Það er betra en að gráta einn.
8. Það er allt í lagi að reiðast út í guð. Hann þolir það.
9. Safnaðu pening fyrir elliárin og byrjaðu með fyrsta launaseðlinum.
10. Þegar kemur að súkkulaði, þá er mótstaða árangurslaus.
11. Semdu frið um fortíðina, þannig að hún eyðileggi ekki samtíðina.
12. Það er í lagi að láta börnin þín sjá þig gráta.
13. Berðu ekki þitt líf saman við annarra. Þú hefur ekki hugmynd um hvernig þeirra líf er.
14. Ef samband þarf að vera leynilegt, þá áttu ekki að vera í því.
15. Allt getur breyst á augabragði. En hafðu ekki áhyggjur.
16. Dragðu andann djúpt, það róar hugann.
17. Losaðu þig við allt sem er ekki nýtilegt, fallegt eða skemmtilegt.
18. Það sem ekki drepur þig gerir þig bara sterkari.
19. Það er aldrei of seint að hafa barnæskuna skemmtilega. En sú seinni er alveg undir þér komin.
20. Þegar kemur að því að sækjast eftir því sem þú elskar við lífið, taktu þá aldrei Nei sem svar.
21. Brenndu kertin, notaðu fínu rúmfötin, farðu í fínu nærfötin. Sparaðu þetta ekki fyrir sérstök tilefni. Í dag er sérstakt tilefni.
22. Undirbúðu þig ávallt vel, láttu svo strauminn taka þig.
23. Vertu óvenjuleg í dag. Bíddu ekki eftir gamalsaldri til að klæða þig í fjólubláan lit!
24. Mundu að mest áríðandi kynfærið er heilinn.
25. Enginn ræður yfir hamingju þinni nema þú.
26. Rammaðu inn allar svokallaðar þjáningar með orðunum. „Mun þetta skipta einhverju máli eftir 5 ár?“
27. Hafðu lífið alltaf að leiðarljósi.
28. Fyrirgefðu öðrum allt.
29. Það sem aðrir hugsa um þig kemur þér alls ekki við.
30. Tíminn læknar svo til allt. Gefðu tímanum tíma.
31. Hversu gott eða slæmt sem ástandið er, þá mun það breytast.
32. Taktu þig ekki of hátíðlega, enginn annar gerir það.
33. Trúðu á kraftaverk.
34. Guð elskar þig vegna þess hver hann er, ekki vegna þess sem þú gerðir eða gerðir ekki.
35. Endurskoðaðu ekki lífið. Vertu til staðar og taktu þátt í því.
36. Að verða gamall er betra en hinn kosturinn, að deyja ungur.
37. Börnin þín fá bara eina barnæsku.
38. Allt sem skiptir máli í lokin er að þú hafir elskað.
39. Farðu út á hverjum degi , kraftaverk bíða alls staðar.
40. Ef við myndum öll kasta áhyggjum okkar í stafla og sæjum stafla hinna, þá myndum við hrifsa okkar til baka.
41. Öfund er tímasóun. Þú hefur nú þegar allt sem þú þarfnast.
42. Það besta er ef til vill einnig ókomið.
43. Það skiptir ekki máli hvernig þér líður, farðu á fætur, klæddu þig og sýndu þig.
44. Láttu undan.
45. Lífið er ekki skreytt með slaufum, en samt er það gjöf
Myndband dagsins og ekki spillir fyrir hvað hann er myndarlegur.
Frábær platan hans. Fjölbreytt og flott tónlist
Hreyfing:
Stend mig ágætlega bara
Úthaldið er að aukast og hraðinn. Líður samt stundum eins og ellilífeyrisþega og ég er svo óþolinmóð. Vil komast í form í gær!!!!!!
Speki dagsins:
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2010 | 11:30
Skilnaðarhundurinn
Ég átti Labradorhund sem ég varð að gefa fyrir ári síðan mér til mikillar mæðu.
Þessi hundur var alveg einstakur og þegar við skildum vorum við ekki alveg til í að láta hann fara strax heldur sjá aðeins til.
Þannig hann fylgdi alltaf börnunum og var í viku hjá mér og viku hjá mínum ex.
Fólki fannst þetta alveg dásamlegt fyrikomulag og fór að kalla hann skilnaðarhundinn.
Nema, svo fer þetta að verða erfitt þar sem annar aðilinn hafði minni tíma fyrir hundinn og hann fór að verða kvöð á öllum, enda stórt og mikið dýr. Svo ég fór að leita að nýjum eiganda og eftir dálítinn tíma fann ég fjölskyldu fyrir hundinn og mér best veit eru allir alsælir.
Það er svo fyndið hvað dýr geta haft mikinn persónuleika eins og þessi hundur og það eru alltaf allir til í að dásama sitt dýr enda eru þau gleðigjafi í lífi þeirra sem eiga þau.
Ég átti til dæmis einu sinni risastóran páfagauk, Blue Fronted Amazon sem elskaði mig en hataði alla karlmenn einhverra hluta vegna.
Hún réðist á alla karlmenn sem voru í kringum mig og fólk var farið að benda mér á að hún væri í alla stað hættuleg. Enda gaf ég hana þegar ég varð ólétt og mér þótti það mjög erfitt en þorði ekki fyrir mitt litla líf að hafa hana í kringum ungabarn.
Og það er líka synd að vilja eiga dýr en þurfa svo að gefa það.
En þessi hundur minn átti til að stinga af eins og ógeltir hundar gera gjarnan og oftar enn einu sinni þurfti ég að leita heilu og hálfu tímana af honum þegar hann stakk af og líka vegna þess að manni stóð ekki á sama um hundinn og ef hann yrði valdur af slysi.
Ef hann náði að stinga af að þá var hann yfirleitt ekki lengur í burtu en í ca. 2 klst. og kom þá heim með alls konar góðgæti eins og dauðan fugl, þvagflösku (ekki spyrja mig hvar hann nappaði henni), pappír, spýtur, greinar og lengi má telja.
En fyndnasta var að sjá þegar hann hljóp inn götuna hinn ánægðasti með frelsið og þegar hann sá húsið byrjaði hann að skríða fullur iðrunar yfir að hafa gert eitthvað sem var rangt.
Ég las einhverstaðar í hundafræðiriti að hundar gera alltaf það sem hentar þeim best. Þeir gera það ekki fyrir húsbóndann heldur einungis í sína þágu, sem mér fannst mjög athyglisvert.
Eðli úr náttúrunni að verða ekki bitnir af leiðtoganum.
Þegar ég skildi var erfiðara að fara að finna hundinn þegar hann stakk af en í eitt skiptið sleit hann risakeðju á vegg og fór í drauma sniff- og pissuferð að kvöldlagi.
Börnin voru sofandi og ég átti mjög erfitt með að fara út og leita.
En ég stekk út, labba smá hring og kalla og keyri einn snöggan hring um hverfið.
En hundur sást hvergi. Svo líður klukkutími og tveir og ég fer að verða stressuð, því hundur yfirleitt mættur á svæðið eftir þann tíma.
Svo ég hringi á lögguna og læt vita af honum, segi hann örmerktan og með merkta ól.
Ekki finnst hundur.
Þessa nótt var ég andvaka.
Mér leið eins og ég væri að bíða eftir unglingi að koma af balli en aldrei kom hundur.
Um morguninn hringdi ég að Leirum (hundahótelið) og viti menn - hvutti er þar.
Ég bruna upp eftir og punga út 30 þ. kalli til að leysa helvítið út og er verulega bölvandi í huganum og langar til þess að skjóta hundskvikindið sérstaklega þar sem ég hafði nú ekki verið að sleppa honum lausum.
Enn!! - þegar hvutti sá mig, leit hann upp, horfði ekki á mig og var í svo mikilli fýlu að ég hef ekki séð annað eins.
Hann dillaði ekki rófunni, grét ekki eins og vanalega þegar hann sá mig og alla leiðina heim horfði hann út í loftið eins og hann væri að hugsa: Þvílíkur húsbóndi að láta góma mig og láta mig sofa í þessu ógeðslega búri í alla nótt hjá ókunnugu fólki.
Hann kom ekki að fyrra bragði til mín fyrr en eftir 3 klst.
Eftir þetta atvik ákvað ég að gefa hundinn því að ég sá mér ekki fært að hugsa um hann ein og ég var farin að finna fyrir vanlíðun hjá honum.
En ég sakna oft hvutta en er samt glöðust yfir því að hann er á góðu heimili með góðu fólki
Myndband dagsins:
Hreyfing dagsins:
Fór í gær - reyni að halda mig við mán - mið og föst + lau.
Búin að bæta mig í hraða og úthaldi - mjög ánægð með það. Hita upp í 15 mínútur, er hætt á hjólinu og er komin á brettið í 25 mín.
Mæli ekki með því að lenda milli tveggja sem hafa geðveikt þol og úthald ef þú ert með keppnisskap eins og ég - ekki gott, ekki gott.
Speki dagsins:
Lífið á ekki að vera skáldsaga sem við fáum að gjöf, heldur saga sem við semjum sjálf.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.2.2010 | 16:29
Kennari vs. leikari
Ég hló svo mikið að einum þætti um daginn á stöð 2 þar sem konugrey var að sofa hjá einhverjum karli og hann vildi kúra aðeins lengur og þá segir hún mjög alvarleg: Ef ég fer ekki í vinnuna í dag, deyr fólk og henni var mikið niðri fyrir (hún var hjúkka í þáttunum Mercy eða eitthvað slíkt).
Well, hvort sem ég mæti í vinnuna eða ekki deyr ábyggilega einhver og nemendur verða ábyggilega mismótækilegir eins og í gær.
Mikið langar mig að prófa þessa setningu einn daginn eins og þessi hjúkka.
Starf okkar kennara er þannig að þegar maður labbar inn á stofnun eins og skóla, þar sem hrúga af misupplögðum og áhugasömum nemendum eru, þýðir ekki að taka allar birgðar heimsins með þér í vinnuna.
Krakkar eru ótrúlega snjallir að finna veikasta blett kennara síns og mörg hver gera allt til þess að taka yfir stjórnina þrátt fyrir að vilja það ekki.
Ég var með nemanda um daginn sem endurtók allt sem ég sagði í 30 mínútur.
Það tók á taugarnar en sem betur fer hafði "leikarinn" valdið og ég snappaði ekki - sem ég hefði líklegast gert við mín eigin börn.
Ég lendi líka oft í samtölum við unga drengi sem halda að ég viti allt um tölvur og stinga af úr kennslu til þess að spjalla við mig um DOS og RAM og að pabbi þeirra sé ótrúlega snjall á tölvur og hvaða tölvuleiki þeir spila og spurningaflóðið er yfirgengilegt.
Það VERSTA er að þeir halda að ég hafi brjálaðan áhuga líka
En ef ég kem mér að leikaraskapnum lýsir hann sér þannig að ef ég var að rífast við einhvern um morguninn get ég verið í fýlu alla leið í vinnuna en um leið og ég byrja að kenna þarf ég að breytast í aðra persónu ef ég vil ekki verða grafinn lifandi.
Ég hef séð samstarfsfélaga mína í mörgu ljósi:
- sem vinnufélaga
- sem vinnufélaga sem maður skemmtir sér með
- sem kennara
- sem vini fyrir utan vinnustaðs
- sem samstarfsaðila
- sem fagstétt
þetta eru 6 hlutverk og eflaust fleiri ef ég myndi kafa dýpra.
Og þegar þessir vinir mínir og samstarfsmenn eru að kenna, sé ég oft á þeim hlið sem ég vissi ekki að þeir ættu til.
Mér finnst líka fyndið að sjá þegar þessir vinir mínir, kennararnir, detta í kennslukonugírinn þegar þeir fara að tala við börn eins og þegar læknar hnykla brýrnar og setja upp sjúkdómsgreiningarsvipinn þegar einhver hóstar.
Starfið manns verður alltaf partur af sjálfum manni en samt þarf maður að setja sig í annað hlutverk og vera annar en maður er en vera samt maður sjálfur.
Ég held að góður kennari sé samblanda af þessu öllu.
Vera hann sjálfur, kunna að leika og líka að feika!
Mér finnst frábært að vera kennari, ég elska starfið mitt, er stolt af því og stolt af skólanum sem ég vinn í og ávallt þegar ég er ekki upplitsdjörf hef ég fullt, fullt af fólki sem er til að kenna mér hvernig hlutirnir gætu orðið, voru eða eru.
En verstu nemendur og þeir óþekkustu sem ég hef kennt eru kennarar!! Þeir eru bæði málglaðir og vilja stjórna og erfitt að senda þá fram á gang til að hugsa málið
Svo er líka alltaf verið að leiðrétta starfsetninguna hjá manni eða orðatiltæki en ég er víst snillingur að snúa út úr öllu og segja vitlaust.
Um daginn sagði ég til dæmis: Þessi kaffistofa er eins og hænsnabjarg og að sjálfsögðu var ég leiðrétt en ég sagði þetta í góðri trú!!!
Myndband dagsins:
Hreyfing dagsins:
Ég er með harðsperrur í herðablöðunum????????
En er með valkvíða - veit ekki hvort ég ætla í kvöld eða á morgun....en þá hlaup hlaup hlaup
Er svo ánægð að vera komin í gírinn!!
En vá hvað ég var svöng í gærkvöldi!! Ég held að ég hafi verið síétandi fram að miðnætti!!
Speki dagsins:
Margir koma ekki auga á hamingjuna, því hún kostar ekkert
Góða helgi og takk fyrir innlitið!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.2.2010 | 22:54
það er engin ástæða að láta sér leiðast.....
1. Finndu nokkrar dauðar flugur (í gluggakistunni eða í skúffunni)
2. Leggðu þær á heitan stað til að þurrka þær alveg, u.þ.b. klst.
3. Þegar þær eru orðnar alveg þurrar, þarftu bara pappírsörk og blýant. Leyfðu svo ímyndunaraflinu að njóta sín.

Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.2.2010 | 14:08
Boðuð verkföll!
Hvernig dettur verkalýðsfélögum að boða verkfall þegar ríkissjóður er á hvínandi kúpunni?
Auðvitað vilja allir launahækkanir á þessum síðustu og verstu tímum!
Ég verð smá pirruð þegar ákveðnar stéttir eru að fara fram á allt að 25% launahækkun þegar m.a. samningar kennara og fleiri stétta eru búnir að vera lausir í um 1 ár. Stjórnendur skólanna hafa tekið á sig launalækkanir til þess að koma á móts við þarfir þjóðfélagsins.
Ég hefði ekkert á móti því að fá launahækkun um 25% og ég hefði líka ekkert á móti því að láta laga þessa ömurlegu kjarasamninga kennara, sem eru allt of flóknir en ég er ein af mörgum úr kennarahópnum sem steinheldur kjafti vegna þess að samúðin með kjarabaráttu okkar hefur oftast verið engin.
Síðast þegar við fórum í verkfall árið 2004 (og NB! ég er ekki hlynnt verkföllum) var sett á okkur lögbann og samúð almennings var enginn. Sem er að mörgu leiti skiljanlegt því ekki geta blessuð börnin verið sjálfala og svo ber okkur skv. lögum að mennta þau.
Ég geri ekki ráð fyrir því að þeir sem boða verkfall fái mikla samúð almennings né ríkiskassans, því ef þeir fá launahækkun verður titringur í þjóðfélaginu sem þýðir það að allir vilja launahækkun og Jóhanna Sigurðardóttir verður endanlega gráhærð.
Og ég tek það fram að ég er búin að sjá fréttir um að sumir séu nú þegar búnir að semja, sem er gott mál.
Það eru margir atvinnulausir, margir búnir að lenda í því að missa vinnuna oftar en einu sinni og svo vitum við ekki einu sinni hver mun leiða Ríkisstjórnina ef þjóðin kýs nei varðandi Icesave.
Ég geri fastlega ráð fyrir því að hún þurfi að segja af sér.
En hins vegar finnst mér réttlátt ef það er verið að semja um ákvæði innan kjarasamninga eins og t.d. réttindi og annað.
Ég held bara, miðað við margar efnahagslegar spár, að 2010 eigi eftir að verða íslendingum eitt erfiðasta ár í Íslandssögunni, tel ég að launadeilur séu ekki efst í huga þeirra ráðamanna sem ríða rækjum hér.
Myndband dagsins:
Jon La Joie er Kandadískur grínari sem er með mjög svartan húmor og gerir hérna grín af rapplögum. Konur! Ekki láta textann fara í taugarnar á ykkur því hann er kolsvartur...
Hann er mjög umdeildur þessi grínari og margir sem halda að hann sé ekki að leika þetta.
Hreyfing dagsins:
Ræktin í dag........hlaup hlaup hlaup - annars er ég að fá hálsbólgu og kvef en so be it.....bara meira Omega 3 og vítamín..
Speki dagsins:
Time is a great teacher, but unfortunately it kills all its pupils ... - Louis Hector Berlioz
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Myndaalbúm
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.3.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 172
- Frá upphafi: 2984
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 44
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar





aslaugosk
brjann
ellahelga
gurrabk
topplistinn
innipuki
iaprag
kolbrunb
martasmarta
skandalan
millihrauna
raudka
ragnarfreyr
lehamzdr
postdoc